Félag háskólakennara er fjórða fjölmennasta aðildarfélag Bandalags háskólamanna (BHM). BHM er heildarsamtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði. Bandalagið var stofnað 23. október 1958. BHM er bandalag hagsmunatengdra félaga og/eða stéttarfélaga sem starfa að fag- og vinnumarkaðslegum málefnum félagsmanna sinna. Aðildarfélög BHM eru samtals 24 og félagsfólk um 19.000.
Meðal verkefna BHM er að:
- Styðja við starf aðildarfélaga
 - Efla þekkingu félagsmanna á kjara- og réttindamálum
 - Semja um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál skv. umboði
 - Gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum
 - Hafa frumkvæði að umræðu um háskólamenntun og stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði
 
Fulltrúar Félags háskólakennara í stjórnum og nefndum BHM 2022-2023
- Íris Davíðsdóttir, ritari Fh, í stjórn BHM
 - Baldvin Zarioh, formaður Fh, er í stjórn jafnréttisnefndar BHM
 - Íris Davíðsdóttir, ritari Fh í kjörstjórn BHM
 - Íris Davíðsdóttir, ritari Fh í lagabreytinganefnd BHM