Reglur vinnumatssjóðs Félags háskólakennara vegna rannsókna

Samþykktar í háskólaráði 7. apríl 2006

Sjá hér:
 Eldri reglur
_____________________  

1. gr.


Félagsmenn í Félagi háskólakennara sem falla undir matskerfi kennara og sérfræðinga og gegna a.m.k. hálfu starfi eiga kost á greiðslum fyrir nýsköpun og árangur í rannsóknum umfram vinnuskyldu á liðnu almanaksári. Skulu þeir þá skila vinnuskýrslu til rannsóknasviðs Háskóla Íslands eigi síðar en 1. mars ár hvert sbr. 5. grein. Matsnefnd skipuð af háskólaráði í samráði við Félag háskólakennara metur rannsóknastörf umsækjenda til stiga samkvæmt lið A í matsreglum FH og HÍ og tengdra stofnana, sbr. grein 2.8 í stofnanasamningi. Ekki er greitt úr vinnumatssjóði vegna áunninna stiga fyrir doktorsritgerð og tilvitnanir.

 

2. gr.

Fjárhæð vinnumatssjóðs FH vegna rannsókna skal vera 12,5% af árslaunum fyrir dagvinnu þeirra kennara og sérfræðinga sem eru í a.m.k. hálfu starfi við Háskóla Íslands með álagi samkv. töflum 2.1 og 2.2 í 2. kafla stofnanasamningsins.

Skýring
Með kennurum og sérfræðingum er átt við eftirfarandi starfsheiti: Aðjunkt, lektor, dósent, sérfræðingur, fræðimaður og vísindamaður.
 

3. gr.

Greiðslur fyrir hvert rannsóknastig úr vinnumatssjóði taka mið af starfshlutfalli hvers og eins. Þannig fær félagsmaður sem er í hálfu starfi greitt helming á við þann sem er í fullu starfi fyrir hvert rannsóknarstig umfram vinnuskyldu.

 

4. gr.

Við útreikning á rannsóknaframlagi félagsmanna í fullu starfi skal árleg vinnuskylda kennara og sérfræðinga með 40% rannsóknaskyldu eða minna miðast við 7 stig, sjá þó grein 2.7 í stofnanasamningi. Árleg vinnuskylda þeirra sem eru með 100% rannsóknaskyldu miðast við 14 stig og annarra hlutfallslega þar á milli. Þannig miðast árleg vinnuskylda þeirra sem eru með 60% rannsóknaskyldu við 9,33 stig og árleg vinnuskylda þeirra sem eru með 80% rannsóknaskyldu við 11,67 stig. Áunnin stig umfram það sem hér um getur teljast því rannsóknaframlag umfram rannsóknaskyldu og verða lögð til grundvallar greiðslu úr vinnumatssjóði. Stig þeirra sem eru með annað starfshlutfall og/eða annað hlutfall rannsóknaskyldu eru reiknuð hlutfallslega og í samræmi við ákvæði í ráðningarsamningi.  
 

5. gr.

Vinnuskýrslu skal skila til rannsóknasviðs Háskóla Íslands eigi síðar en 1. mars ár hvert. Árlegt mat skal liggja fyrir í síðasta lagi 1. júní ár hvert og skal rannsóknasvið Háskóla Íslands úthluta greiðslum úr sjóðnum 1. september ár hvert. Félagsmaður í Félagi háskólakennara getur fengið greitt úr sjóðnum á árinu eftir að hann fer á eftirlaun vegna rannsókna sem unnar eru á því ári sem hann lætur af störfum.
 

6. gr.

Gefinn er kostur á að skila inn athugasemdum til rannsóknasviðs við niðurstöðu mats innan 15 daga frá því það liggur fyrir. Ágreiningi skal vísa til áfrýjunarnefndar vegna vinnumats. Áfrýjunarnefnd ber að kanna, hvort vinnumat hafi verið í samræmi við reglur. Úrskurður hennar er endanlegur.

 

Reykjavík 7. apríl 2006

 

Fyrir hönd Háskóla Íslands

Guðmundur R. Jónsson (sign.)
Gunnlaugur H. Jónsson (sign.)
Guðrún J. Guðmundsdóttir (sign.)

 

Fyrir hönd Félags háskólakennara

Jóhannes R. Sveinsson (sign.)
Jörundur Guðmundsson (sign.)
Sigríður Björnsdóttir